28. ágúst 2008
Húsaleigusamningar
Í tilkynningu frá sviðstjóra húsnæðis, Öldu Baldursdóttur, eru nemendur hvattir til þess að koma og gera húsaleigusamninga dagana 1. - 4. og 8. - 11. september næstkomandi. Samningarnir verða gerðir í Rannsóknamiðstöðinni á annarri hæð í aðalbyggingu skólans við hliðina á tölvudeildinni.
Þeir verða afgreiddir milli kl. 11:00 og 12:00 og 13: 00 og 16:00.
Þeir sem sækja um húsaleigubætur þurfa að sækja um hjá þeirri félagsþjónustu sem þeir eru hjá fyrir 15. september. Húsnæðissvið býður upp á að senda húsaleigusamningana í þinglýsingu gegn greiðslu.
Hægt er að skipta um lögheimili hér á staðnum.