Fréttir
22. ágúst 2008

Vinnuhelgi í frumgreinadeild, RSF og verslunarstjórnun

 Um 80 nýnemar mæta á sína fyrstu vinnuhelgi á Bifröst í dag, föstudaginn 22. ágúst. Þetta eru  nemendur sem  eru að hefja fjarnám í frumgreinadeild ásamt diplómanemum í verslunarstjórnun og öðrum sem hefja nám í Rekstri smærri fyrirtækja. Dagskráin hefst kl. 12.00 í Hriflu með ávarpi rektors. Að því loknu verður gert hlé á dagskrá og öllum boðið að fylgjast með ólympíulandsleik Íslendinga og Spánverja í handbolta. Gaman er að geta þess að þjálfari íslenska landsliðsins og 2 leikmenn þess stunda nám við Háskólann á Bifröst.

 

Dagskrá vinnuhelgarinnar er svohljóðandi:

Föstudagur 22. ágúst

 

Kl. 12.00   Setning náms - Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst

Kl. 12.15    Handboltaleikur á Kaffi Bifröst

Kl. 13.30    Kynning á námskjá og netkerfi - Finnbjörn Börkur Ólafsson, Sigurður Kristófersson

Kl. 14.30    Upplýsingatækni / Bókfærsla /Stærðfræði  Jón Freyr Jóhannsson, Þórir Páll Guðjónsson og Hlynur  Arnórsson.   

Kl. 19.00   Samhristingur og sameiginlegur kvöldverður á Kaffi Bifröst

 

 

Laugardagur 23. ágúst

Kl. 09:00 – 15:00   Upplýsingatækni / Bókfærsla/ Stærðfræði / Rekstur verslana

Kl. 15:00 – 16:30    Námstækninámskeið – Ragnheiður Bóasdóttir  

 

Umsjónarmenn fjarnáms í símenntunardeild er Geirlaug Jóhannsdóttir og í frumgreinadeild Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri