19. ágúst 2008
Verkefni í nýsköpunaráfanga orðið að veruleika
 |
| Jón Þrándur Stefánsson, dósent við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst |
Verkefni sem að hluta til var unnið í nýsköpunaráfanga við Háskólann á Bifröst leiddi til stofnunar fyrirtækisins Online Audio Guide. Einn aðstandenda þess er Kristinn Leifsson, viðskiptafræðinemi.
Nú hefur afrakstur verkefnisins, ný vefsíða fyrir söfn, www.hljóðvísar.is verið tekin í notkun.
Hljóðvísar.is er sameiginlegur vettvangur safna sem sniðinn er í kringum hljóðvísa, en það eru upplesnar leiðsagnir um ýmis söfn og sýningar.
Þjónustan miðar að því að gefa söfnum tækifæri á að miðla upplesnum leiðsögnum til gesta og verða áberandi vettvangur fyrir söfn og sögulega staði á netinu. Gestir hlaða efninu niður á eigin tæki sér að kostnaðarlausu og hlusta svo á hljóðvísinn þegar komið er á vettvang. Starfsfólk safna hefur aðgang að umsýslukerfi þar sem það getur unnið með hljóðvísana og sett inn upplýsingar til gesta.
Kerfið var tekið í notkun við hátíðlega athöfn í Minjasafni Reykjavíkur laugardaginn 26. júlí, en ásamt Minjasafninu eru Þjóðminjasafnið, Listasafn Íslands og Viðey þátttakendur frá byrjun. Efnið sem um ræðir er mjög fjölbreytt, en á síðunni er að finna hljóðvísa á mörgum tungumálum svo sem flestir geti notið leiðsagnar um sýningar safnanna. „Okkur þykir sérstaklega gaman að því að eitt safnið bjóði upp á hljóðvísi á pólsku. Við teljum það mjög jákvætt innlegg og gefur þeim mörgu Pólverjum sem búa hér á landi tækifæri á að kynna sér íslenska sögu á eigin móðurmáli. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og þjónustan okkar virðist klárlega eiga erindi við íslensk söfn. Með því að taka þátt eru söfnin að auka töluvert við þjónustu sína ásamt því að verða sýnileg á netinu”, segir Kristinn Leifsson. Online Audio Guide er ekki einungis hugsað fyrir íslensk söfn. „Við lítum á Norður-Evrópu sem heimamarkað. Þar er mikill fjöldi safna með tengda sögu en þar er einnig hátt tæknistig sem auðveldar okkur að innleiða nýjungar í farsímatækni.”
Hugmyndin um Online Audio Guide vaknaði síðastliðið sumar. Ásamt Kristni standa nokkrir nemar úr verkfræðideild HÍ að verkefninu. Þeir þróuðu hugmyndina tæknilega, sóttu sér þekkingu um keppinauta erlendis og könnuðu það til hlítar hvort viðskiptagrundvöllur gæti verið fyrir þeirri nálgun sem þeir höfðu að markmiði.
„Nýsköpunaráfanginn hjá Jóni Þrándi Stefánssyni, dósent á Bifröst, nýttist okkur mjög vel. Áfanginn sýndi til dæmis fram á nauðsyn þess að hafa afmarkaðan markhóp og sníða vöruna að honum, en að sleppa því að reyna að selja öllum allt. Jón Þrándur kom með krefjandi spurningar varðandi ýmsa þætti og eftir áfangann er maður til dæmis mun meðvitaðri um hvað nýsköpunarfyrirtæki eru viðkvæm hvað varðar sjóðstreymi og hvað það er mikilvægt að kanna ekki einungis þörfina fyrir vöruna sjálfa heldur einnig fjárhagslegan fýsileika og markaðslegar aðstæður varðandi samkeppni. Áfanginn hnýtti þetta allt saman á prýðilegan hátt. Í lokin þurftum við svo að verja hugmyndina frammi fyrir bekknum, en það var mjög hollt og sýndi fram á hvað undirbúningurinn fyrir kynningar verður að vera góður,“ sagði Kristinn að lokum.
Hægt er að skoða afraksturinn á síðunni www.hljóðvísar.is