Fréttir
11. ágúst 2008

Fyrirtæki framtíðarinnar - ráðstefna á afmælisári

Elín Blöndal prófessor er forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála. Hún stýrir verkefninu um Jafnréttiskennitöluna.
Ráðstefna um nýtingu mannauðs í stjórnun og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja verður haldin í Salnum í Kópavogi þann 19. september næstkomandi. Ráðstefnan er liður í afmælisdagskrá Háskólans á Bifröst á 90. ára afmælisári hans.

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, mun ávarpa ráðstefnugesti en aðalfyrirlesari verður Eleanor Tabi Haller-Jorden framkvæmdastjóri Catalyst í Evrópu, leiðandi fyrirtækis í rannsóknum á sviði jafnréttis og viðskipta. Aðrir fyrirlesarar eru Marit Hoel framkvæmdastjóri Centre for Corporate Diversity í Noregi og Nordic 500 könnunarinnar, Elín Blöndal prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst, Þór Sigfússon formaður Samtaka atvinnulífsins, Margrét Sæmundsdóttir hagfræðingur viðskiptaráðuneytisins og Illugi Gunnarsson alþingismaður. Þá munu stjórnendur úr atvinnulífinu taka þátt í umræðum.

Ágúst Einarsson, rektor við Háskólann á Bifröst, setur ráðstefnuna og Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar, verður fundarstjóri. Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.

Ráðstefnan er eins og áður segir liður í 90 ára afmælisdagskrá Háskólans á Bifröst. Með henni lýkur jafnframt verkefninu um Jafnréttiskennitöluna, sem unnið hefur verið af Rannsóknasetri í vinnurétti og jafnréttismálum við Háskólann á Bifröst. Samstarfsaðilar þess eru viðskiptaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisstofa og jafnréttisráð. Sérstakir styrktaraðilar verkefnisins árið 2008 eru Inn-fjárfesting og Baugur Group.


Ráðstefnan í Salnum er öllum opin en ráðstefnugjald er 4500 krónur og er morgunverður innifalinn. Húsið verður opnað kl. 8:00 en dagskráin stendur frá 8.30-12.30. Skráning hefst mánudaginn 18. ágúst næstkomandi. Hún fer fram í síma 433 3000 og á heimasíðu Háskólans á Bifröst: www.bifrost.is

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri