 |
| Sigrún Lilja Einarsdóttir, umsjónarmaður fjarnáms |
Um það bil 60 nemendur hefja fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst nú í ágúst en fyrsta vinnuhelgin í fjarnáminu hefst á föstudaginn kemur. Um er að ræða 180 eininga nám til BS gráðu. Umsjónarmaður fjarnámsins er Sigrún Lilja Einarsdóttir.
Með því að stunda fjarnám gefst fólki sem ekki hefur tök á að hætta vinnu eða flytjast búferlum tækifæri til að stunda háskólanám.
Sérstaða fjarnámsins felst m.a. í því að nemendur geta stjórnað tíma sínum að miklu leyti sjálfir. Fyrirlestrar eru aðgengilegir á vef skólans og geta nemendur nálgast þá hvenær sem þeim hentar.
Nemendur taka þrjár til fjórar námsgreiar á önn, eða 20 - 26 ECTS einingar. Með þessu fyrirkomulagi er hægt að ljúka náminu á fjórum árum. Námsinnihald er það sama og í staðnámi og kennarar oftast þeir sömu en það býður upp á þann möguleika að færa sig yfir í staðnámið þegar líður á námið. Sömu reglur gilda í fjarnámi og staðnámi varðandi verkefnavinnu og verkefnafyrirkomulag þannig að gæði námsins eru þau sömu.
Námið er skipulagt sem nám með vinnu og fer fram með hálfum hraða miðað við reglulegt staðnám. Hvert námskeið er 4 - 8 ECTS einingar, hver námsgrein tekur að meðaltali 4 - 6 vikur og lýkur með prófi eða lokaverkefni.
Verkefni eru unnin á netinu og eru einstaklings-, para- eða hópverkefni. Verkefnin geta tekið allt frá nokkrum klukkustundum upp í nokkrar vikur í vinnslu, allt eftir umfangi og aðstæðum. Nemendur geta kallað fram fyrirlestra þegar þeim hentar og eins oft og þeir vilja óháð stað og stund og þeir geta prentað útsent efni.
Þrisvar til fjórum sinnum á hverri önn hittast nemendur á vinnuhelgum á Bifröst sem hefjast eftir hádegi á föstudegi og lýkur seinnipart laugardags. Þessar vinnuhelgar eru notaðar til fyrirlestra, verkefnavinnu og samskiptaþjálfunar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur mæti á vinnuhelgar og taki fullan þátt í kynningum, gagnrýnni umræðu og öðru sem fram fer.
Dagskrá fyrstu vinnuhelgar haustsins dagana 8. - 10. ágúst er svohljóðandi:
Aðferðafræði og rannsóknir
Umsjón: Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur
Föstudagur 8. ágúst
Æskilegt er að þeir nemendur sem eru í vandræðum með tölvur sínar komi fyrir hádegi og nýti sér tölvuþjónustuna á staðnum
11:30 – Mæting á Bifröst – tekið á móti herbergjum
12:30 – Fundur með nýnemum - (Hrifla)
13:35 – Námstækninámskeið - Ragnheiður Bóasdóttir, námsráðgjafi (Hrifla)
15:35 – Kaffihlé
16:00 – Samhristingur - Edda Björgvinsdóttir (Hrifla)
19:30 – Kvöldverður á Kaffi Bifröst
Laugardagur 9. ágúst
08:00 – Morgunmatur á Kaffi Bifröst
09:00 – Kennsla /fyrirlestrar /verkefnavinna (Hrifla)
12:00 – Hádegisverður á Kaffi Bifröst
13:00 – Kennsla / fyrirlestrar / verkefnavinna (Hrifla)
17:00 – Áætluð lok kennslu
20:00 – Kvöldverður á Kaffi Bifröst
Sunnudagur 10. ágúst
08:00 – Morgunmatur á Kaffi Bifröst
09:00 – Kennsla /fyrirlestrar /verkefnavinna (Hátíðarsalur)
12:00 – Hádegisverður á Kaffi Bifröst
13:00 – Kennsla / fyrirlestrar / verkefnavinna (Hátíðarsalur)
17:00 – Áætluð lok kennslu