31. júlí 2008
Meistaranám í fullum gangi
Hátt á annað hundrað meistaranemar eru nú staddir í háskólaþorpinu vegna sumarlotu meistaranáms við Háskólann á Bifröst.
Í félagsvísindadeild er boðið upp á meistaranám í menningarstjórnun og Evrópufræðum, í viðskiptadeild er boðið upp á nám alþjóðlegri bankastarfsemi og fjármálum, alþjóðaviðskiptum og stjórnun heilbrigðisþjónustu. Í lagadeild eru nemendur í meistaranámi í lögum eða skattarétti. Nemendahópurinn er því bæði fjölbreyttur og litríkur.
Kennarar í meistaranáminu koma víða að. Þeir eru ýmist fastir kennarar við háskólann á Bifröst eða aðra íslenska eða erlenda háskóla eða hafa getið sér gott orð í viðskiptalífinu á sínu sérsviði. Meðal gestakennara í meistaranáminu má nefna Þorgeir Örlygsson, dómara við EFTA dómstólinn í Luxembourg, David Marshall, prófessor við Edinborgarháskóla og Stefán Georgsson, sérfræðing hjá Landsbanka Íslands. Frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, CBS, koma þau Eyþór Ívar Jónsson, dósent og Verner Worm og Marina Papanastassiou prófessorar í alþjóðaviðskiptum. Verner er jafnframt forstöðumaður The Copenhagen Business Confucius Institute og Marina er forstöðumaður Center of International Business Studies.
Eins og gefur að skilja er mikið vinnuálag á nemendum í sumarlotum en þær standa yfir í fjórar til sex vikur eftir því hvar fólk er statt í náminu og búa meistaranemarnir nær undantekningarlaust í háskólaþorpinu á meðan. Skólinn býður upp á kraftgöngur og gönguferðir með leiðsögumönnum í hinu fagra umhverfi háskólans. Þá er meistaranemum boðið til sameiginlegs hátíðarkvöldverðar á meðan á sumarlotunni stendur.