Fréttir
28. júlí 2008

Gönguferðir í nágrenni háskólans

Paradísarlaut
Meistaranemum og öðrum áhugasömum verður boðið upp á kraftgöngur og gönguferðir með leiðsögumönnum á meðan á sumarnáminu stendur. Þriðjudagana 29. júlí og 5. ágúst verður lagt af stað í kraftgöngu frá háskólatorginu klukkan 17.30. Kraftgangan tekur um það bil klukkustund og stjórnandi er Árný Helgadóttir.

Miðvikudaginn 30. júlí verður farið í gönguferð að Hreðavatni og um skógræktarsvæðið í Jafnaskarðsskógi. Birgir Hauksson, skógarvörður, annast leiðsögn með sögulegu ívafi. Fimmtudaginn 7. ágúst verður gengið að bökkum Norðurár, að fossinum Glanna og niður í Paradísarlaut. Leiðsögn með sögulegu ívafi annast Þórir Páll Guðjónsson. Gönguferðirnar hefjast klukkan 17.30 og þeim lýkur um klukkan 19.00.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri