 |
| Nemendur brugðu sér í klæðnað frá liðinni tíð | |
Þann 18. júlí síðastliðinn var haldin fjölskyldu- og menningarhátíð í háskólaþorpinu á Bifröst. Tilefnið var 90 ára afmæli skólans en Samvinnuskólinn forveri háskólans á Bifröst hóf starfsemi árið 1928. |
 |
| Hér sést hluti af markaðssvæðinu | |
Mikið var um dýrðir á hátíðinni sem fór fram í blíðskaparveðri og var einstaklega vel sótt. Á háskólatorginu var markaður þar sem boðið var upp á prjónavörur, listmuni ýmiss konar, skartgripi, sultu, hákarl, bækur, snyrtivörur og fleira og fleira. Sögusýning um skólahald frá upphafi var fróðleg og vel sótt.
|
 |
| Jóhanna Katrín Stefánsdóttir heillaði áheyrendur upp úr skónum | |
Ýmsar uppákomur má nefna s.s. söng karlakórsins Söngbræðra, Sigríðar Aðalsteinsdóttur sópransöngkonu, Voces Masculorum og síðast en ekki síst Jóhönnu Katrínar Stefánsdóttur, ungrar stúlku frá Bifröst sem ekki lét sig muna um að stíga á svið og syngja Rósina eftir Friðrik Jónsson og Guðmund Halldórsson þegar smátafir urðu á dagskránni. |
 |
| Í hátíðarsalnum svignuðu borðin af kræsingum | |
Arna Kristín Einarsdóttir lék á flautu og hljómsveitin Bandið bak við eyrað flutti nokkur lög. Kaffi og þjóðlegt meðlæti var á boðstólum í hátíðarsalnum allan daginn. Þar gátu gestir líka bakað sínar vöfflur sjálfir og fengið þær rjúkandi heitar og ilmandi. |
 |
| Gamla rútan hans Sæmundar er sannkallað augnayndi | |
Skipulagðar gönguferðir voru farnar um Jafnaskarðsskóg, í Paradísarlaut og á Grábrók og sá Sæmundur Sigmundsson um að ferja göngumenn áleiðis á sannkallaðri fornrútu sem vakti mikla athygli. Bjarni Guðjónsson úr Borgarnesi mætti með klárana sína og teymdi undir börnunum við miklar vinsældir. |
 |
| Fuglahræðan og Dórótea ásamt "gömlum Bifrestingi" | |
Félagar úr leikdeild Ungmennafélags Stafholtstungna fluttu leikþætti og leikhópurinn Lotta sýndi atriði úr Galdrakarlinum í Oz. |
 |
| Voces Masculorum frumfluttu Bifrastarlagið eftir Jóhann Jóhannsson við texta Jónastar Friðriks | |
Margt fleira var á dagskrá hátíðarinnar sem var ákaflega vel sótt. Skipuleggjandi hátíðarinnar var Edda Björgvinsdóttir, leikkona og meistaranemi í menningarstjórnum við Háskólann á Bifröst. Meðfylgjandi myndir tók Sveinn Gíslason laganemi. |