21. júlí 2008
Breyting á gjaldskrá nemendagarða
Breyting verður á gjaldskrá nemendagarða samkvæmt vísitölu frá 1. ágúst næstkomandi. Húsaleiga við nemendagarða Háskólans á Bifröst hefur ekki hækkað í tæpt eitt ár og ekki heldur samkvæmt vísitölu frá 1. september 2007 þrátt fyrir heimildir til þess en skólinn hefur tekið á sig hækkanir á þessum tíma. Þann 1. ágúst 2008 n.k. mun húsaleiga hækka samkvæmt breytingu á vísitölu frá 1. september 2007. Til samanburðar má geta þess að Stúdentagarðarnir í Reykjavík hækka húsleigu með vísitölu mánaðarlega og hafa auk þess hækkað leiguna um 5,25% á þessu tímabili.