Fréttir
18. júlí 2008

Upplifið slagkraft sögunnar - Fjölbreytt dagskrá á fjölskyldu- og afmælishátíð

Það verður líf og fjör á háskólatorginu í dag
 Afar fjölbreytt dagskrá verður á fjölskylduhátíð í háskólaþorpinu á Bifröst í dag. Hátíðin er haldin í tilefni af því að 90 ár eru liðin síðan Samvinnuskólinn, forveri Háskólans á Bifröst, hóf göngu sína í Reykjavík. Ýmsir listviðburðir verða á hátíðinni og má m.a. nefna að sönghópurinn Voces Masculorum frumflytur nýtt Bifrastarlag, Arna Kristín Einarsdóttir leikur á flautu, Sigríður Aðalsteinsdóttir syngur við undirleik Viðars Guðmundssonar, karlakórinn Söngbræður flytur nokkur lög og hljómsveitin Bandið bak við eyrað leikur ljúfa tónlist. Boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir og fjársjóðsleit í Jafnaskarðsskógi, listasmiðju úti undir berum himni, hestaferðir, útimarkað og fleira og fleira. Þá má geta sögusýningar þar sem saga skólans í 90 ár er rakin í máli og myndum. Skipuleggjandi hátíðarinnar er Edda Björgvinsdóttir leikkona og meistaranemi við Háskólann á Bifröst.

Dagskrá

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri