Fréttir
16. júlí 2008

Rannsókn dr. Herdísar Þorgeirsdóttur kynnt æðstu yfirmönnum dómsmála í Bandaríkjunum

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor
Á ársfundi forseta Hæstaréttar Bandaríkjanna og dómstjóra æðstu dómstóla sem haldin verður 27. júlí næstkomandi verða m.a. kynntar niðurstöður rannsókna dr. Herdísar Þorgeirsdóttur prófessors sem hún hefur unnið fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins. Herdís sem á sæti í Feneyjanefndinni, sem er ráðgjafanefnd aðildarríkja um stjórnskipuleg málefni,  hefur undanfarið ár unnið að rannsókn á fjölmiðlum og lýðræði. Judith Resnik lagaprófessor við Yale háskóla  kynnir rannsókn Herdísar fyrir þessum æðstu yfirmönnum dómsmála í Bandaríkjunum. Judith Resnik var sem kunnugt er útnefnd fremsti fræðimaður á sviði lögfræði árið 2008 af bandarísku lögmannasamtökunum. Á ársfundinum flytur hún erindi um stjórnskipulegar skuldbindingar ríkja um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar fyrir dómstólum og frjálsa fjölmiðla.

Fyrir tveimur árum kom út bók hjá alþjóðlega útgáfufyrirtækinu Martinus Nijhoff eftir Herdísi Þorgeirsdóttur um ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla á grundvelli tjáningarfrelsisákvæðis Mannréttindasáttmála Evrópu og jafnframt í samanburði við þá stjórnskipulegu vernd sem fjölmiðlar njóta út frá fyrstu bandarísku stjórnarskránni. Sú úttekt er viðamikil en Kevin Boyle prófessor við Essex háskóla segir í formála í bókinni að rannsókn Herdísar gangi út á það að sýna fram á skyldur aðildarríkja Evrópuráðsins í að tryggja fjölmiðlafrelsi og sé rannsókn hennar á dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í þessum tilgangi ein sú viðamesta sem gerð hafi verið á þessu sviði. Kevin Boyle er þekktur og virtur sérfræðingur á sviði tjáningarfrelsis í Evrópu. Sá þáttur sem Herdís hefur rannsakað nánar fyrir Evrópuráðið snýr að sjálfsstýringu fjölmiðla.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri