Fréttir
14. júlí 2008

Sparkvöllur tekinn í notkun í háskólaþorpinu

Fulltrúar KSÍ og bæjarstjóri Borgarbyggðar ásamt hópi ungra Bifrestinga
Nýr sparkvöllur í Háskólaþorpinu á Bifröst var formlega tekinn í notkun þann 27. júní síðastliðinn. Völlurinn er hluti af sparkvallaátaki KSÍ sem hófst árið 2004 og íbúar háskólaþorpanna á Bifröst og Hvanneyri njóta nú góðs af.

Um er að ræða eitthvert umfangsmesta útbreiðsluverkefni sem KSÍ hefur ráðist í frá upphafi. Kveikjan að því var ákvörðun knattspyrnusambands Evrópu um að veita aðildarsamböndum sínum styrk til að byggja sparkvelli. KSÍ sótti um styrk til fjárlaganefndar Alþingis og leitaði eftir stuðningi Eimskipa, Olís, VÍS og KB-banka og setti stefnuna á að nýta þetta fjármagn til að byggja sem flesta sparkvelli.  Hugmynd KSÍ var frá upphafi sú að fá til liðs við sig sveitarfélög í landinu, þannig að KSÍ legði til fyrsta flokks gervigras á velli sem byggðir væru eftir leiðbeiningum frá KSÍ víðs vegar um landið.

 Við opnun sparkvallarins á Bifröst tóku til máls þeir Jón Gunnlaugsson stjórnarmaður KSÍ, Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð og Ágúst Einarsson, rektor háskólans. Guðlaugur Gunnarsson starfsmaður KSÍ afhenti Jóhannesi Má Dagbjartssyni, formanni Ungmennafélags Stafholtstungna nokkra fótbolta að gjöf. Börn og foreldrar léku fótboltaleik og að því búnu bauð Borgarbyggð upp á veitingar í tilefni dagsins.

Óhætt er að fullyrða að sparkvöllurinn er kærkomin viðbót við hina ágætu aðstöðu sem er að finna í háskólaþorpinu á Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri