Fréttir
14. júlí 2008

Bifrestingar styrkja barnaheimili í Tékklandi

Myndskreyting í stigagangi barnaheimilisins í Prag
 Þann 25. júní síðastliðinn var haldinn skiptifatadagur í háskólaþorpinu á Bifröst. Íbúar þorpsins lögðu til heilleg barnaföt sem börn þeirra voru hætt að nota og voru flíkurnar seldar á 100 krónur stykkið. Jafnframt safnaðist mikið magn barnafata sem sent var til barnaheimilis í Tékklandi.

Forsaga málsins er sú að sviðstjóri húsnæðissviðs Háskólans á Bifröst, Alda Baldursdóttir, heimsótti samstarfsskóla Bifrastar í Prag sl. vor. Hún bað þar sérstaklega um að fá að sjá leikskóla fyrir börn nemenda en komst að því að slíkar stofnanir eru ekki til; nemendur bíða með barneignir þar til menntun er lokið eða mæður taka sér þriggja til sex ára frí frá námi fæðist þeim barn á námstímanum. Öldu gafst hins vegar tækifæri á að heimsækja svokallað "kengúruheimili" eins og það er kallað á tékknesku.

Kengúruheimili eru heimili þar sem "frændur og frænkur" annast 2 - 3 börn í fjölskyldu. Börnin sem koma þangað hafa verið misnotuð, vanrækt eða geta af einhverjum ástæðum ekki verið hjá fjölskyldum sínum. Þau dvelja á kengúruheimilunum í lengri eða skemmri tíma; um 75% þeirra fara aftur heim en um 25% barnanna eru ættleidd. Ungabörn sem skilin eru eftir í þar til gerðum kössum fara á kengúruheimilin og þau eru ævinlega ættleidd. Börnin ganga í skóla í hverfinu og hafa það eins gott og hægt er. Fyrirtæki hafa gefið húsgögn og allur aðbúnaður er góður. Ríkið borgar hluta launakostnaðar en að öðru leyti byggir starfsemin á frjálsum framlögum. Velferð barnanna er ætíð í fyrirrúmi og það kemur fyrir að "frænkurnar og frændurnir" þurfa að bíða eftir laununum sínum. 

Alda fékk þá hugmynd að gefa Bifrestingum tækifæri til að losa sig við barnafatnað sem þeir hefðu ekki not fyrir lengur; fá nýjar flíkur á vægu verði og síðast en ekki síst að styrkja gott málefni. Skemmst er frá því að segja að viðbrögð urðu afar góð; eitthvað seldist af fötum, en 12 stórir kassar eru lagðir af stað til kengúruheimilisins í Prag. Háskólinn á Bifröst styrkir framtakið með því að greiða flutningskostnað og jafnframt veitti hann aðstöðu í Kringlunni þar sem söfnunin fór fram. Starfsfólk og nemendur sem  hjálpuðu til höfðu á orði hversu ánægjulegt það væri að taka þátt í slíku verkefni.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri