Fréttir
16. júlí 2008

Fjölskylduhátíð á Bifröst í tilefni 90 ára afmælis skólans

Edda Björgvinsdóttir, meistaranemi við Háskólann á Bifröst, er aðalskipuleggjandi hátíðarinnar
Föstudaginn  18. júlí næstkomandi verður haldin fjölskylduhátíð á Bifröst í tilefni af 90 ára afmæli skólans. Hátíðin hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 16:00. Allir sem vettlingi geta valdið eru hjartanlega velkomnir og gamlir og nýir Bifrestingar, Samvinnuskólanemar og Samvinnuháskólanemar eru sérstaklega hvattir til að heimsækja gamlar slóðir.

Fjölskylduhátíðin samanstendur af  fjölmörgum listrænum uppákomum og sprellfjörugum atriðum fyrir alla aldurshópa, m.a. má nefna  útimarkað þar sem seldir verða  listmunir, grænmeti, fatnaður o.fl.

Listamenn munu stíga á stokk – í húsakynnum skólans og úti í náttúrunni -  og fremja gjörninga.

Listasmiðja verður starfrækt fyrir börn og fullorðna þar sem kynslóðunum gefst tækifæri til að eiga skapandi samverustundir.

Meðal listrænna atriða sem í boði verða eru óperusöngur, flautuleikur, kórsöngur og  söngsveitir  og leikhópar bjóða uppá fjölbreytt atriði .

 Nemendur skólans  munu bregða sér í hlutverk fyrstu nemenda sem innrituðust í skólann, stíga á stokk og rifja upp baráttumál þess tíma.

Í hátíðasal skólans verður kaffisala og þjóðlegt meðlæti á boðstólum og gefst gestum kostur á að baka sínar eigin vöfflur.

Um miðbik dagsins verður Bifrastarlagið frumflutt við hátíðlega athöfn.

Skipulagðar gönguferðir verða á Grábrók, í Paradísarlaut, að Glanna og Hreðavatni og ratleikur og happdrætti munu krydda dagskrána.

Sýning á gömlum munum, myndum og handritum verður opnuð í tilefni hátíðarinnar og óvæntir gjörningar og spunaverk verða á vegi gesta þegar síst skyldi.

Gestum og gangandi býðst að leggja stein í vörðu sem mun rísa á lóð skólans sem minnisvarði um 90 ára farsælt skólastarf.

Skipuleggjandi hátíðarinnar er Edda Björgvinsdóttir nemi í meistaranámi mennta- og menningarstjórnunar við Háskólann á Bifröst.

Allir listamenn og aðrir er leggja hönd á plóg þennan dag eru núverandi eða útskrifaðir nemendur skólans.

Í háskólaþorpinu er rekið Fosshótel og upplýsingar um gistingu má fá í síma 435 0101.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri