Fréttir
26. júní 2008

Rannsóknamiðstöðin fær rúmar 3 milljónir til rannsókna á húsnæðismálum

Rannsóknamiðstöðin fær rúmar 3 milljónir til rannsókna á húsnæðismálum

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst hefur nú fengið fjárhagslegan stuðning til rannsóknarverkefnisins: „Lokun félagslega íbúðakerfisins – Hvað kemur í staðinn?“ sem nemur ríflega 3,1 milljón króna. Verkefnið er skilgreint og því stýrt af Jóni Rúnari Sveinssyni, fil. lic. félagsfræðingi og sérfræðingi við Rannsóknamiðstöð. Rannsóknaverkefninu er ætlað að varpa

sem skýrustu fræðilegu ljósi á þróun félagslega húsnæðiskerfisins allar götur til ársins 1999 og afleiðingar lokunar eignaíbúðakerfisins á þeim árum sem síðan eru liðin. Einnig verður gerð grein fyrir þróuninni um og eftir aldamótin og hvernig erfiðleikar sem hljóta að kalla á nýjar lausnir og virkar aðgerðir stjórnvalda hafa farið vaxandi í húsnæðismálum eftir þá verðsprengingu á húsnæðismarkaðnum sem hófst árið 2004. 

 

Rannsóknamiðstöð hefur leitað til nokkurra aðila um fjármögnun verkefnisins og hafa alls 6 aðilar styrkt verkefnið: Íbúðalánasjóður er  stærsti styrktaraðili verkefnisins en aðrir eru:  Félagsbústaðir hf., félagsmálaráðuneytið, Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar, Landssamband húsnæðisnefnda og velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Áætlað er að verkinu ljúki á haustmánuðum.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri