Undirbúningsnámskeið í stærðfræði fyrir væntanlega nemendur í stað- og fjarnámi frumgreinadeildar verður haldið á tímabilinu 30. júní til 1. ágúst næstkomandi. Kennsla fer fram í gegnum námskjá, kennslukerfi Háskólans á Bifröst. Í upphafi hverrar viku verða settar inn á námsskjá glærur og hljóðglærur, tveir til fjórir pakkar eftir eðli efnis hverju sinni. Á sama tíma koma inn verkefni vikunnar. Verkefnin eru tvískipt, í A og B hluta, A hluta er skilað til kennara í gegnum námskjá fyrir vikulok, og gefin einkunn fyrir. Í vikulok eru settar á námskjáinn hljóðglærur þar sem bæði A og B hluti verkefna er leystur af kennara.
Nánari upplýsingar verða sendar þeim sem skrá sig á námskeiðið. Skráningu skal senda á netfangið bifrost@bifrost.is, merkt stærðfræðinámskeið, með upplýsingum um nafn, kennitölu, netfang og símanúmer.
Þátttökugjald er kr. 14.000.-
Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi atriði stærðfræðinnar:
1. vika (30. júní – 4. júlí)
Formerki
Liðir og þættir
Röð aðgerða og forgangsmerki
2. vika (7. – 11. júlí)
Almenn brot
Óþekktar stærðir
3. vika (14. – 18. júlí)
Jöfnur
4. vika (21. – 25. júlí)
Örlítið um veldi en svo farið betur í þau í næstu lotu
Annars stigs formúlan
Jöfnuhneppi
5. vika (28. júlí – 1. ágúst)
Vaxtareikningur prósentur – núvirði
Veldi, rætur & lograr
Bókin sem stuðst verður við er:
Stærðfræði handa fornámi, eftir Oddný G. Harðardóttir
Bókin er til í bókabúð Iðnú Brautarholti 8 og kostar 2.490 kr.