16. júní 2008
Tryggingagjald vegna húsnæðis í háskólaþorpinu
Nemendur sem koma inn í nám næsta haust og verða í húsnæði á vegum
skólans verða krafðir um 15.000 kr. tryggingagjald samkvæmt heimild í húsaleigusamningi. Það kemur í stað staðfestingargjalds sem ætlunin var að innheimta samkvæmt úthlutunarreglum og hefur verið fallið frá en reglunum
verður breytt. Tryggingagjald verður endurgreitt við brottför ef húsnæðinu er skilað í góðu ástandi samkvæmt reglum um skil og úttekt.