Fréttir
9. júní 2008

Brautskráning nemenda frá Háskólanum á Bifröst

Dr. Ágúst Einarsson rektor
Tæplega eitt hundrað nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn í Hriflu í dag. Nú voru í fyrsta sinn brautskráðir nemendur úr meistaranámi í International Banking and Finance, meistaranámi í skattarétti, fjarnámi í frumgreinadeild og diplómanámi í rekstri smárra fyrirtækja. Ágúst Einarsson, rektor, flutti hátíðarræðu og Erlingur Hansson fulltrúi nemenda sem útskrifuðust frá Samvinnuskólanum árið 1947 ávarpaði samkomuna og færði skólanum að gjöf vatnslitamynd eftir Kristínu Þorkelsdóttur. Birna Kristín Ásbjörnsdóttir, nemandi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar lék tvö verk eftir Claude Debussy á píanó og útskriftarnemar fluttu ávörp.

Í ræðu rektors kom fram að menntun og menning eru lykillinn að því að halda jafnvægi í byggð landsins og ef stjórnvöld vilja þetta jafnvægi beri að efla þá háskóla sem starfa á landsbyggðinni. Hann sagði jafnframt að við útskrift frá Bifröst fengju nemendur réttindi en því að vera Bifrestingur fylgdu skuldbindingar; skuldbindingar skólans, skuldbindingar sögunnar og skuldbinding þess að vera nýtur einstaklingur.

Að vanda voru þeir nemendur heiðraðir sem náðu framúrskarandi námsárangri. Útskriftarverðlaun og sæti á Bifrastarlistanum hlutu Bryndís Matthíasdóttir, Halla Bjarnadóttir og Sigurbergur Ármannsson í grunnnámi og Þórarinn Ingi Ólafsson og Eyrún Guðjónsdóttir í meistaranámi. Viðurkenningar nemenda sem enn eru í námi felast í afslætti af skólagjöldum og sæti á Bifrastarlistanum. Þeir nemendur eru Árni Þór Finnsson, Árni Sverrir Hafsteinsson, Ásta Jóhannsdóttir, Gylfi Jónsson, Hafdís Anna Bragadóttir, Halldór Berg Harðarson, Helga Björg Jónsdóttir, Kristín Anna Hjálmarsdóttir, Linda Björk Sigurðardóttir, Ragnhildur Sigurbjartsdóttir, Rósamunda Jóna Baldursdóttir, Snorri Guðmundsson, Snorri Snorrason, Svanhildur Jónsdóttir og Þórhildur Ósk Halldórsdóttir.

Að lokinni athöfn var gestum boðið upp á veitingar í hinum gamla hátíðasal skólans.

Ræðu rektors má lesa hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri