4. júní 2008
Equality is a right, not a privilege
 |
| Maud de Boer Buquicchio, annar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, í ræðustól á Bifröst |
Á vef Evrópuráðsins
www.coe.int má nú lesa ræðu Maud de Boer Buquiccio sem hún flutti á Tengslaneti IV við Háskólann á Bifröst fyrir skömmu. Aðild að Evrópuráðinu eiga 47 ríki með yfir 800 milljónir íbúa og má því með nokkrum rétti segja að hér sé um að ræða ágætis kynningu fyrir skólann. Í ræðunni lagði de Boer Buquiccio áherslu á að jafnrétti væri mannréttindi en ekki forréttindi. Hún sagði að ekki væri nóg að bjóða nokkrum konum til málamynda inn í salarkynni valdsins til að láta allt líta vel út á yfirborðinu. Konur við völd eru ekki húsgögn, sagði hún. Þær eiga að vera þær sem færa húsgögnin til.