Fréttir
30. maí 2008

Glæsilegt Tengslanet

Helga Þórarinsdóttir lék á lágfiðlu við upphaf Tengslanets
Ráðstefnunni Tengslanet IV - Völd til kvenna lauk í Háskólanum á Bifröst í dag. Ráðstefnan, sem nú var haldin í fjórða sinn, bar yfirskriftina Konur og réttlæti. Maud de Boer Buquicchio annar framkvæmdastjóri Evrópusambandsins flutti upphafserindi ráðstefnunnar en aðalfyrirlesari Tengslanetsins var að þessu sinni Judith Resnik, prófessor við lagadeild Yale háskóla.

Yfir 400 konur tóku þátt í ráðstefnunni sem hófst að vanda á fimmtudegi með göngu á Grábrók þar sem Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur ávarpaði gestina. Að því búnu var snæddur kvöldverður á Kiðáreyrum við Hreðavatn. Að loknum fyrirlestrum erlendu gestanna á föstudagsmorgni tóku við pallborðserindi í fjórum liðum þar sem fjallað var um kvenorkuna í atvinnulífinu; lífsbaráttuna; réttlæti og pólitíska rétthugsun og nýjar leikreglur í þágu réttlætis. Meðal þeirra sem fluttu erindi má nefna rithöfundana Kristínu Mörju Baldursdóttur og Vigdísi Grímsdóttur, Guðrúnu Nordal prófessor, Kristínu Lindu Jónsdóttur kúabónda,  Maríu Ellingsen leikkonu, Valgerði Bjarnadóttur varaþingmann, Ragnhildi Sverrisdóttur blaðamann, Guðnýju Halldórsdóttur kvikmyndagerðarmann o.fl., o.fl.

Stofnandi og stjórnandi Tengslanetsins er dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor. Þátttakendur á Tengslaneti IV færðu henni þakkir með dynjandi lófataki í lok ráðstefnunnar.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri