Fréttir
5. júní 2008

Ráðstefna um stjórnmál og viðskipti í Mið-Austurlöndum

Dr. Jerry M. Rosenberg heldur aðalfyrirlestur ráðstefnunnar
Ráðstefna um stjórnmál og viðskipti í Mið-Austurlöndum og tækifæri Íslendinga þar að lútandi verður haldin í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 6. júní næstkomandi. Aðalfyrirlesari er Jerry M. Rosenberg, prófessor við Rutgers University.

Dagskrá ráðstefnunnar hefst klukkan 14.00 og lýkur með pallborðsumræðum undir stjórn Jóns Ólafssonar, prófessors klukkan 17.00. Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor, stýrir ráðstefnunni, sem fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis og skráningar er ekki krafist. Meðfylgjandi er dagskrá ráðstefnunnar.

 

 

 

 

 Dagskrá

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri