Fréttir
29. maí 2008

Vel sótt ráðstefna um rekstrarform í heilbrigðisþjónustu

Rúmlega 100 manns tóku þátt í  ráðstefnu um fjölbreytt rekstarform í heilbrigðisþjónustu sem haldin var fyrir skömmu á vegum meistaranáms í stjórnun heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst.

Á ráðstefnunni var fjallað um rekstrarform í heilbrigðisþjónustu frá ólíkum sjónarhornum og hvort fjölga eigi þeim einkaaðilum sem veita þjónustu.

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra flutti ávarp og ræddi meðal annars um þann ávinning sem einkaaðilar hafa fært heilbrigðisþjónustunni á Íslandi.

Allyson Pollock ræddi um heilbrigðiskerfið í Englandi og hvernig markaðsvæðing heilbrigðiskerfisins þar hefur mistekist.  Því næst ræddi Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir um hvernig fjölga megi þeim sem veita heilbrigðisþjónustu og Kieke Okma ræddi um að það væri ekki til nein töfralausn í heilbrigðisþjónustu yfir höfuð, það færi allt eftir aðstæðum hverju sinni og að opinberir aðilar væru ekki endilega betur til þess fallnir að veita þjónustuna en einkaaðilar. Gestur Pétursson flutti erindi um hvort einkarekstur útilokaði opinberan rekstur og öfugt og sagði hann mikilvægt að veitendur þjónustunnar, hvort heldur það væru einkaaðilar eða opinberir aðilar stuðluðu að góðu starfsumhverfi, styrkri stjórn og að leiðtogar væru við störf.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri