Fréttir
29. maí 2008

Gríðarleg þátttaka í Tengslaneti IV

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir er stofnandi og skipuleggjandi Tengslanets
Ráðstefnan Tengslanet IV - Völd til kvenna stendur dagana 29. og 30. maí. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Konur og réttlæti. Á fimmta hundrað konur hafa boðað komu sína í Norðurárdalinn til að sitja ráðstefnuna.  

Á meðal fyrirlesara eru Judith Resnik prófessor við lagadeild Yale háskóla í Bandaríkjunum og Maud de Boer-Buquicchio annar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Fjöldi kvenna af ýmsum sviðum samfélagsins verður með framsögur í tengslum við meginþema ráðstefnunnar. Stjórnandi og skipuleggjandi Tengslanetsins frá upphafi er dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor.

Dagskráin hefst síðdegis á fimmtudag með göngu á Grábrók  þar sem Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, ávarpar göngukonur. Kvöldverður verður síðan borinn fram á Kiðáreyrum við Kiðá í nágrenni Hreðavatns. Formleg dagskrá hefst á föstudegi með erindum erlendu gestanna en síðan taka við pallborðsumræður í fjórum liðum: Kvenorkan í atvinnulífinu undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Foreldrar og fyrirvinnur undir stjórn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur; Réttlæti og pólitísk rétthugsun undir stjórn Hjördísar Hákonardóttur og loks Nýjar leikreglur í þágu réttlætis undir stjórn Valgerðar Sverrisdóttur. Ráðstefnunni lýkur með mótttöku forseta Íslands á Bessastöðum.

Þetta er fjórða Tengslanetsráðstefnan sem haldin er á Bifröst en sú fyrsta var haldin árið 2004. Hugmynd dr. Herdísar Þorgeirsdóttur, stofnanda ráðstefnunnar var að skapa nýja leið í jafnréttisbaráttunni þar sem mikilvægt er að konur efli tengslanet sitt, ræði saman á gagnrýninn hátt um baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna og vinni í þágu annarra kvenna. Ætlunin var að ná til kvenna á sem flestum sviðum samfélagsins. Tengslanetið hefur frá upphafi verið ein fjölsóttasta ráðstefna landsins en eins og áður segir er að þessu sinni  von á rúmlega 400 konum á Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri