27. maí 2008
Er list útflutningsvara?
Útflutningsráð Íslands og Bandalag íslenskra listamanna standa fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 29. maí frá 8.30 - 10 á Grand Hótel í Reykjavík. Umfjöllunarefni fundarins er útflutningur íslenskrar listar. Þrír fræðimenn munu velta fyrir sér spurningum sem varða stöðu listar innan hagkerfisins, hvernig list getur skapað þjóðfélaginu tekjur og hvort ríkið eigi að skipta sér af útflutningi listar með styrkjum.
Erindi flytja Margrét Sigrún Sigurðardóttir aðjúnkt við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Gunnar Þór Jóhannesson nýdoktor við Mannfræðistofnun Háskóla Íslands og Njörður Sigurjónsson lektor við Háskólann á Bifröst. Fundarstjóri verður Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst.
Boðið verður upp á léttan morgunverð. Aðgangseyrir er enginn. Skráning fer fram í gegnum netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511-4000. Nánari upplýsingar veitir Bergur Ebbi Benediktsson verkefnisstjóri hjá Útflutningsráði.