Fjölskyldudagur verður haldinn hátíðlegur í háskólaþorpinu á Bifröst þriðjudaginn 27. maí. Þá munu börn og fullorðnir fagna sumri og gera sér glaðan dag. Dagskráin hefst kl. 16.00 með fótboltamóti á nýja sparkvellinum. Keppt verður í tveimur flokkum; tíu ára og yngri og ellefu ára og eldri; allir keppendur fá viðurkenningarskjal og veitt verða verðlaun í báðum flokkum. Á háskólatorgi verður boðið upp á hoppukastala og andlitsmálningu og þeir sem vilja geta brugðið sér á hestbak. Hátíðinni lýkur með sameiginlegu grilli á háskólatorgi.