Kristín hefur meistarapróf í alþjóðalögum og grunnháskólagráðu í viðskiptafræði og markaðsfræðum. Hún mun jafnframt gegna áfram starfi alþjóðafulltrúa en starf alþjóðaskrifstofu verður eflt með ráðningu nýs starfsmanns í sumar, Júlíusar Arnarsonar sem er að ljúka prófi í HHS og er fyrrverandi formaður Nemendafélagsins. Jafnframt eru alþjóðamálin færð frá kennslusviði yfir til skrifstofu rektors.