26. maí 2008
Innlit í íslenska landmarkaðinn
Kolfinna Jóhannesdóttir sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst flytur erindi um hegðun og þróun viðskipta á íslenskum landmarkaði á fundi í Ársal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri miðvikudagskvöldið 28. maí nk. kl. 20:30.
Auk hennar verða Daði Már Kristófersson, Hagfræðistofnun HÍ og Erna Bjarnadóttir, Bændasamtökum Íslands með erindi um þróun eignarhalds á lögbýlum, m.a. í ljósi nýtingar og hlunninda. Fundurinn er öllum opinn og fundarstjóri verður Haraldur Benediktsson.
Innlit í íslenska landmarkaðinn
Fundur í Ársal Landbúnaðarháskóla Íslands Hvanneyri
miðvikudagskvöldið 28. maí nk. kl. 20:30
Framsögur:
Hegðun og þróun viðskipta á íslenskum landmarkaði 1998-2007
Kolfinna Jóhannesdóttir Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst
Þróun eignarhalds á lögbýlum, m.a. í ljósi nýtingar og hlunninda
Daði Már Kristófersson Hagfræðistofnun HÍ og Erna Bjarnadóttir Bændasamtökum Íslands