28. maí 2008
Tónleikar í boði Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Félags íslenskra tónlistarkennara (FÍT)
Næstu háskólatónleikar verða í Hriflu miðvikudaginn 28. maí næstkomandi. Tónleikarnir eru gjöf Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Félags íslenskra tónlistarkennara (FÍT) til Háskólans á Bifröst í tilefni 90 ára afmælis skólans.
Það er landsliðskvartett sem leikur á tónleikunum; Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik á fiðlur, Helga Þórarinsdóttir á lágfiðlu og Bryndís Halla Gylfadóttir á knéfiðlu.
Háskólinn á Bifröst og FÍH hafa haft gott samstarf um menningarmál og tónleikahald á Bifröst og vill FÍH því færa okkur þessa glæsilegu gjöf. Tónleikarnir standa frá klukkan 17.00 - 18.00 og eru allir velkomnir, ekki síst börnin. Aðgangur er ókeypis.