19. maí 2008
Menningarstefnur sveitarfélaga
Ráðstefna um menningarstefnur sveitarfélaga verður haldin í Ketilhúsinu á Akureyri þann 22. maí kl. 13:00 - 16:15. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Menningarráðs Eyþings, Menningarráðs Austurlands, Háskólans á Akureyri og Akureyrarstofu.
Á ráðstefnunni verður fjallað um menningarstefnur sveitarfélaga og hvernig þær geta stuðlað að framförum og eflingu byggðar.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.