Fréttir
21. maí 2008

Úthlutun húsnæðis

Útgarður
 Hér er birtur listi með nöfnum þeirra sem sóttu um húsnæði fyrir fyrsta maí. Þær umsóknir sem enn eru í vinnslu verða teknar fyrir í næstu úthlutun þann 10. júní. Greiðsluseðlar verða sendir út samkvæmt úthlutunarreglum og staðfestingargjald, kr. 15.000, innheimt, en það verður svo dregið af fyrstu greiðslu í haust. Sé úthlutun ekki staðfest fellur hún niður. Nýnemar og þeir sem segja upp húsnæði í vor en ætla að koma aftur fá slíka seðla.

Þeir sem eru að skipta um húsnæði þurfa ekki að greiða staðfestingargjald en þeir sem skipta um húsnæði í sumar greiða 10.000 króna flutningsgjald. Þetta á þó ekki við þegar flutt er úr Skógarseli í aðrar 3ja herbergja íbúðir á Nemendagörðum. Fólk sem á von á barni og fjölskyldufólk sem á rétt á að flytja úr tveggja herbergja í þriggja herbergja íbúð eða þriggja herbergja í fjögurra herbergja íbúð er undanþegið flutningsgjaldi.

Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og húsreglur er að finna á vef skólans undir liðnum Háskólaþorpið - Nemendagarðar.

Alda Baldursdóttir, sviðsstjóri húsnæðis, verður í sumarfríi frá 19. maí til 2. júní. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til hennar á netfangið alda@bifrost.is . Öllum athugasemdum verður svarað eftir 3. júní.

 

Húsnæðisúthlutun 1. maí 2008

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri