Fréttir
17. maí 2008

Útskrift úr Mætti kvenna

 

Þriðji útskriftarhópur úr Mætti kvenna vorið 2008






















Ágúst Einarsson rektor útskrifaði í dag 33 konur úr rekstrarnámskeiðinu Máttur kvenna. Þetta er þriðji hópurinn sem útskrifast á þessu vormisseri.

Mikil aðsókn var að námskeiðinu en alls hafa 130 konur lokið námi úr Mætti kvenna á þessu vormisseri.  

 

Máttur kvenna er 3ja mánaða námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer svo fram í fjarnámi og geta þátttakendur hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefni hvenær sem þeim hentar. Náminu lýkur með  vinnuhelgi og formlegri útskrift.

Næsta námskeið í Mætti kvenna I er fyrirhugað í febrúar 2009.

Framhaldsnámskeið, Máttur kvenna II, hefst í lok ágúst 2008 og er einkum ætlað þeim konum sem hafa lokið Mætti kvenna I.

 

Fyrsti hópurinn hóf nám í Mætti kvenna vorið 2004 en nú hafa  320 konur lokið náminu.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri