Grétar Þór Eyþórsson, prófessor og forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst, hefur að eigin ósk ákveðið að hætta á Bifröst og flytja alfarið búferlum til Akureyrar þar sem ungir synir hans búa. Grétar mun taka við fullu starfi prófessors við Háskólann á Akureyri 1. ágúst næstkomandi. Grétar hefur unnið mjög mikilvægt starf fyrir Háskólann á Bifröst undanfarin þrjú ár og fylgja honum bestu óskir starfsmanna og nemenda á Bifröst norður heiðar.