Ráðstefna Háskólans á Bifröst og PriceWaterhouseCoopers verður haldin á Grand Hotel í Reykjavík, föstudaginn 16. maí. Ráðstefnan ber yfirskriftina:
Stjórnarhættir hins opinbera og einkageirinn - má læra hvort af öðru?
Háskólinn á Bifröst og PriceWaterhouseCoopers leiða saman hesta sína og leita svara við spurningunni um hvernig stjórnarhættir séu ákjósanlegastir og hvort hið opinbera og einkageirinn geti lært hvort af öðru. Rætt verður um hvort æskilegt sé að stjórna opinberum fyrirtækjum með sambærilegum hætti og einkareknum. Þá verður velt vöngum yfir starfsumhverfi stjórnenda opinberra fyrirtækja, með hvaða hætti stjórnir séu skipaðar og hvort góðir stjórnarhættir ráði ríkjum alla jafna. Hugað verður að nálægðinni við opinbert vald, svo sem stjórnmálamenn, og spurt hvernig það endurspeglist í stjórnskipulagi og stjórnarháttum sem og hvaða áhrif stjórnsýslulög, sveitastjórnalög og lög um opinbera starfsmenn hafi á stjórnarhætti.
Ráðstefnustjóri er Ólöf Nordal, alþingismaður.
Ráðstefnan er öllum opin. Hún stendur frá 14.00 – 16.00 og í lokin verður boðið upp á léttar veitingar. Ráðstefnugjald er 2000 krónur og greiðist við innganginn. Skráning fer fram á bifrost@bifrost.is
Dagskrá:
14.00 - 14.10 Setning og inngangsorð. Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst .
14.10 - 14.20. Björgvin G. Sigurðsson - ávarp viðskiptaráðherra
14.20 - 14.50 David Austin, PwC UK - governance & public sector:
"Recent UK Public Sector Governance Developments - Checks and Balances"
15.00- 15.15. Ragnar Þ. Jónasson, fyrirtækjaráðgjöf PwC:
"Stjórnarhættir fyrirtækja – hvar erum við stödd? - Eiga sömu sjónarmið við um opinber og skráð félög? "
15.15 - 15.30. Ástráður Haraldsson, hrl. og dósent við lagadeild Háskólans á Bifröst:
"Rekstrarform ríkisrekstrar og réttarvernd opinberra starfsmanna"
15.30 - 15.55. Panelumræður.
15.55 - 16.00. Samantekt og slit - Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst.
16:00 - 17:00 Léttar veitingar