9. maí 2008
Þekkingarklasi Vesturlands á Bifröst
Þekkingarklasi Vesturlands samþykkti á fundi sínum á Bifröst 7. maí sl. tillögu um að standa fyrir árlegri ráðstefnu um stöðu þekkingar á Vesturlandi. Markmiðið er að vinna að almennri kynningu á þekkingartengdri starfsemi á Vesturlandi og auka sýnileika hennar. Stefnt er að því að fyrsta ráðstefnan verði haldin í október n.k. Formaður stjórnar klasans er Kolfinna Jóhannesdóttir sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst. Glærur úr erindi hennar frá fundinum er að finna hér. Á fundinum fór jafnframt fram stefnumótunarvinna fyrir klasann. Umsjón var í höndum Sigurborgar Kr. Hannesardóttur framkvæmdastjóra Ildis. Niðurstöður þeirrar vinnu verða birtar á vefsvæði klasans innan tíðar.