7. maí 2008
Fjölmenning -með og á móti
Fjölmenningarhugtakið hefur verið mjög umdeilt á síðustu misserum, og margir stjórnmálamenn í löndum á borð við Bretland og Danmörku, að Íslandi ógleymdu hafa dregið kosti fjölmenningarsamfélagsins í efa og viljað auka áherslu á staðbundna menningu sem undirstöðu samfélagslegra gilda. Lars Binderup er danskur heimspekingur sem hefur
fjallað sérstaklega um fjölmenningu í kennslu og birtum verkum sínum undanfarin ár. Hann heldur þessa vikuna fyrirlestraröð í
félagsvísindadeild sem ber heitið Fjölmenning: Með og á móti. Þar ræðir hann um helstu ágreiningsefni sem birtast í pólitískum deilum um fjölmenningu.
Lars er dósent við Syd Dansk Universitet í Óðinsvéum og stýrir
jafnframt námi í heimspeki, trúarbragðafræði og kennslufræði við
skólann.