Fréttir
6. maí 2008

Útskrift úr diplómanámi í verslunarstjórnun og bókhaldi II

Ágúst Einarsson rektor útskrifaði í dag nemendur úr diplómanámi í verslunarstjórnun annars vegar og úr framhaldsnámi í bókhaldi hins vegar en þeir síðarnefndu útskrifuðust líka í Vestmannaeyjum.

Helgi Björn Ólafsson kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri  og stjórnarmaður í Símenntunarmiðstöð Vesturlands hélt ávarp við athöfnina. Hann greindi frá hinu góða samstarfi sem Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi og Háskólinn á Bifröst hafa átt m.a. varðandi námskeið í bókhaldi og upplýsingatækni. Að þessu sinni tók Viska, fræðslu- og símenntunarmiöstöð Vestmannaeyja þátt í samstarfinu og útskrifuðust 22 nemendur af námskeiðinu Bókhald II , þar af níu í Vestmannaeyjum. Samstarf af þessu tagi er mögulegt vegna fjarnámsins, en Háskólinn á Bifröst býður upp á öflugt fjarnám á ýmsum sviðum og hefur öðlast mikla þekkingu og reynslu á því sviði.

 

Diplómanám í verslunarstjórnun er tveggja ára starfstengt nám á framhaldsskólastigi sem fram fer að mestu með fjarnámi. Markmið námsins er að auka hæfni og þekkingu starfsfólks sem vinnur við verslun og þjónustu. Að námi loknu útskrifast nemendur með diplómapróf í verslunarstjórnun en það veitir rétt til frekara náms við frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.

 

Á annað hundrað nemendur hafa útskrifast úr diplómanámi í verslunarstjórnun við Háskólann á Bifröst frá því kennsla hófst fyrir nokkrum árum.

 

Bæði rektor og Helgi hvöttu útskriftarnema til áframhaldandi náms.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri