Fréttir
6. maí 2008

Framatorgið –Atvinnuþjónusta á vef Háskólans á Bifröst

Háskólinn á Bifröst býður nú uppá nýja þjónustu við fyrirtæki sem eru í leit að starfsfólki og nemendur í leit að starfi. Framatorgið –Atvinnuþjónusta er aðgengilegur og þægilegur vettvangur þar sem fyrirtæki og nemendur Háskólans á Bifröst mætast. Þar býðst fyrirtækjum að birta starfsauglýsingar sér að kostnaðarlausu og fá um leið beint aðgengi að nemendum skólans. Atvinnuauglýsingarnar eru eingöngu aðgengilegar nemendum Háskólans á Bifröst sem eru innskráðir á vef skólans.  Einnig er mögulegt fyrir fyrirtæki að óska eftir samstarfi við nemendur á þessum vettvangi vegna misserisverkefna eða lokaverkefna.

Á Framatorginu eru jafnframt ýmsar upplýsingar fyrir ráðningaraðila um sérstöðu og áherslur skólans sem varpa ljósi á þann einstaka undirbúning sem nemendur hafa hlotið fyrir  aðskiljanleg störf og kröfur atvinnulífsins og hvers konar fólk er hér að finna.

Þá eru á Framatorginu ýmis konar hagnýtar upplýsingar fyrir nemendur um mikilvæg atriði tengd náms- og starfsvali og atvinnuumsóknum.

Framatorgið er í umsjá Erlu Hrannar Vilhjálmsdóttur, sálfræðings og náms- og starfsráðgjafa við skólann.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri