1. maí 2008
Gríðarleg aðsókn að Tengslaneti IV
 |
| Þétt setinn bekkurinn í Hriflu |
Yfir 300 konur hafa nú skráð sig til þátttöku á Tengslanet IV - Völd til kvenna en ráðstefnan verður haldin í lok maí í Háskólanum á Bifröst. Stjórnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar er dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor.
"Það virðist stefna í aðsóknarmet", segir Herdís. "Yfir 300 konur hafa skráð sig á Tengslanet IV - Völd til kvenna þegar mánuður er enn til stefnu. Þátttakendur koma úr öllu litrófi stjórnmála og samfélags. Þetta er merkileg blanda og spennandi. Tengslanetið er að verða að því fyrirbæri sem ég gerði mér vonir um árið 2004. Konur skynja mikilvægi þess að virkja samtakamáttinn og koma saman í því skyni. Það er eitthvað mjög merkilegt hér á ferð . . . konur kann að greina á um leiðir en markmiðið að réttlátara samfélagi eru þær örugglega allar sammála um: Þessi ráðstefna er skref í þá átt. Ég heyrði frá Prófessor Judith Resnik fyrir skömmu og hún hlakkar mikið til að koma. "Hvílíkur heiður að taka þátt í þessari ráðstefnu" sagði hún eftir að hún sá dagskrána.
Aðsóknin hefur vaxið ár frá ári en 2004 mættu um 160 konur; 2005 voru þær um 250 og 2006 voru þær um 400 og var sú ráðstefna sú stærsta í viðskiptalífinu það árið. Ég geri fastlega ráð fyrir því að Tengslanet IV sprengi fyrri met. Maður heyrir áhugann hríslast um samfélagið og á hverjum einasta degi skrá sig konur til þátttöku."