27. mars 2008
Elín Blöndal í sérfræðinganefnd ESB á sviði vinnuréttar
Elín Blöndal tók nýlega sæti í sérfræðinganefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði vinnuréttar. Sérfræðinganefndinni, sem er skipuð mörgum af fremstu fræðimönnum Evrópu í vinnurétti, er m.a. ætlað að vera ráðgefandi fyrir framkvæmdastjórnina og veita henni upplýsingar um framkvæmd vinnuréttar í aðildarríkjunum og á Evrópska efnahagssvæðinu næstu þrjú árin. Elín situr jafnframt í vinnuhópi Evrópusamtaka vinnuréttarlögfræðinga (European Labour Network). Sjá http://www.elln.eu/