Tengslanet IV - Völd til kvenna verður haldin í Háskólanum á Bifröst dagana 29. og 30. maí 2008. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Konur og réttlæti og á meðal fyrirlesara verða Judith Resnik prófessor við lagadeild Yale og Maud de Boer-Buquicchio annar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Frekari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar verða birtar innan skamms.
Stjórnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar er dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor.
Skráningarform og upplýsingar um gististaði