Fréttir
10. mars 2008

Morgunverðarfundur - Hvað með evruna?

Í tilefni af útgáfu bókarinnar Hvað með evruna?, sem nýlega kom út hjá Háskólanum á Bifröst verður haldinn morgunverðarfundur um hugsanlega innleiðingu evru á Íslandi þann 12. mars nk. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík og stendur frá 08:15-10:00. Frummælendur eru bókarhöfundar, Eiríkur Bergmann Einarsson dósent við Háskólann á Bifröst og Jón Þór Sturluson dósent við Háskólann í Reykjavík. Í pallborði verða Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Kristín Pétursdóttir, forstjóri og annar stofnenda Auðar Capital. Fundarstjóri er Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri