10. mars 2008
Málþing í HA um rekstur og skipulag í heilbrigðisþjónustu
Ásta Dís Óladóttir, dósent, verður meðal fyrirlesara á málþingi um rekstur og skipulag í heilbrigðisþjónustu sem haldið verður í Háskólanum á Akureyri á morgun. Ásta Dís mun fjalla um kosti og galla einkarekinnar heilbrigðisþjónustu.
Rekstur og skipulag í heilbrigðisþjónustu. Ríkisrekstur? Einkarekstur? Erum við á tímamótum?“ er yfirskrift málþings sem heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri heldur þriðjudaginn 11. mars nk. Málþingið verður haldið í stofu L201 á Sólborg og hefst kl. 13:00. Allir velkomnir.
Á málþinginu verður fjallað um kosti og galla ólíks stjórnunar- og rekstrarfyrirkomulags heilbrigðisstofnana og árangur skoðaður. Rekstur og skipulag í heilbrigðisþjónustu er málefni sem er ofarlega á baugi núna og mun verða það þegar fram líða stundir. Er þörf á breytingum? Er mögulegt að finna jafnvægi á milli ríkis- og einkarekinnar heilbrigðisþjónustu án þess að skerða gæði þjónustunnar? Er annað formið betra en hitt? Leitast verður við að svara þessum spurningum meðal annarra á þessu málþingi.