6. mars 2008
Hvað með evruna? uppseld hjá útgefanda
Bókin Hvað með evruna? eftir Eirík Bergmann Einarsson og Jón Þór Sturluson er nú uppseld hjá útgefanda. Bókin sem kom út á vegum Háskólans á Bifröst í síðustu viku hefur fengið afar góðar viðtökur.Önnur prentun er væntanleg innan skamms.
Í bókinni eru helstu álitamál varðandi hugsanlega innleiðingu evru á Íslandi greind á einfaldan og aðgengilegan hátt. Fjallað er um myntsamruna í Evrópu og skoðað hvaða áhrif innganga í Evrópusambandið og upptaka evru hefði á íslenskt efnahagslíf og samfélag.
Eiríkur Bergmann Einarsson er dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst og Jón Þór Sturluson er dósent við Háskólann í Reykjavík.