4. mars 2008
Dr. Jón Þrándur og Einar Svansson í fullt starf við viðskiptadeild
 |
| Dr. Jón Þrándur Stefánsson |
 |
| Einar Svansson |
Gengið hefur verið frá ráðningu þeirra dr. Jóns Þrándar Stefánssonar og Einars Svanssonar í fullt starf við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst frá og með næsta skólaári en báðir hafa þeir starfað við skólann í hlutastarfi.
Dr. Jón Þrándur lauk MBA prófi frá The University of North Carolina árið 1992 og doktorsprófi frá Kobe University of Commerce í Japan
árið 2000. Hann gegndi dósentsstöðu við Otaru University of Commerce í Japan á árunum 2000 - 2008.
Einar Svansson lauk nú nýverið tveimur M.Sc gráðum frá Háskóla Íslands og hlaut ágætiseinkunn í báðum; 9.20 í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og 9.13 í Stjórnun og stefnumótun.