3. mars 2008
Skyldur og ábyrgð vísindamanna rædd á málstofu
 |
| Dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor |
Dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands, verður gestur á málstofu þriðjudaginn 4. mars. Í erindi sínu hyggst hún varpa fram spurningum sem snerta ábyrgð og skyldur vísindamanna og ræða þær með hliðsjón af ágreiningsmálum sem komið hafa upp á Íslandi í seinni tíð. Bera vísindamenn siðferðilega eða samfélagslega ábyrgð og í hverju liggur hún þá? Er hún óháð fræðasviði eða þjóðfélagslegum aðstæðum, hvílir hún jafnþungt á öllum vísindamönnum? Hvaða máli skiptir það hvort vísindamenn axla slíka ábyrgð og fylgja því einhver vandkvæði fyrir vísindamenn að gera það?