28. febrúar 2008
Afmælisárið hafið
 |
| Bandið bak við eyrað tekur við lófaklappi áheyrenda |
Hátíðahöld í tilefni af 90 ára starfi Samvinnuskólans sem seinna varð Samvinnuháskólinn, Viðskiptaháskólinn og loks Háskólinn á Bifröst hófust þann 27. febrúar síðastliðinn. Rektor bauð þá íbúum háskólaþorpsins og öðrum vinum og velunnurum skólans til kaffisamsætis og tónleika. Afmælisins verður síðan minnst áfram með margvíslegum hætti á árinu; m.a. með ráðstefnum og málþingum, menningarhátíð og opnu húsi á Bifröst.
Fjölmenni var viðstatt upphaf afmælisársins og mátti þar sjá ýmsa hollvini skólans, sveitarstjórnarmenn, nágranna og svo vitaskuld íbúa háskólaþorpsins. Í ávarpsorðum rektors kom m.a. fram að skólagjöld verða ekki hækkuð á árinu og eru þau því óbreytt þriðja árið í röð. Að loknu rausnarlegu kaffiboði í gamla hátíðarsal var haldið yfir í nýja hátíðarsalinn í Hriflu þar sem Bandið bak við eyrað lék og söng fyrir gesti. Hljómsveitin er skipuð tónlistarfólki úr Borgarnesi , tónlistarkennurunum Gunnari Ringsted gítarleikara, Ólafi Flosasyni óbóleikara og Zsuzönnu Budai píanóleikara en söngkona hljómsveitarinnar er Ása Hlín Svavarsdóttir. Góður rómur var gerður að tónlistarflutningnum og er óhætt að segja að afmælisárið sé hafið með glæsibrag.
Nánari upplýsingar um viðburði á afmælisári má finna hér.