Fréttir
25. febrúar 2008

Bandið bak við eyrað á miðvikudag

Bandið bak við eyrað
Á þessu ári eru 90 ár liðin frá því að forveri Háskólans á Bifröst, Samvinnuskólinn hóf starfsemi sína í Reykjavík. Margt verður til hátíðabrigða á afmælisárinu og hefst dagskrá þess með kaffiboði og tónleikum á Bifröst í dag, miðvikudaginn 27. febrúar.

 Allir vinir og nágrannar skólans eru boðnir velkomnir í kaffið sem hefst kl. 16.00 og á tónleika kl. 17.00. Það er hljómsveitin Bandið bak við eyrað sem leikur og syngur. Hana skipa þau Ása Hlín Svavarsdóttir söngkona, Gunnar Ringsted gítarleikari, Ólafur Flosason óbóleikari og Zsuzsanna Budai píanóleikari. Fyrir utan tónlistina eiga þau það sameiginlegt, að eigin sögn, að vera gott og skemmtilegt fólk úr Borgarfirði. Á efnisskrá tónleikanna verða meðal annars lög og ljóð eftir kanadísku listakonuna Joni Mitchell.

 

Dagskrá afmælisárs

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri