26. febrúar 2008
Málstofa - Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu
 |
| Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarforstjóri Sóltúns |
Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarforstjóri Sóltúns verður gestur á málstofu þriðjudaginn 26. febrúar næstkomandi. Hún mun fjalla um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.
Anna Birna lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands og framhaldsnámi við hjúkrunarfræðideild Árósaháskóla 1987 í hjúkrunarstjórnun á sjúkrahúsum, hjúkrunarvísindum og aðferðafræðum rannsókna með sérstakri áherslu á öldrunarhjúkrun og stjórnun sjúkrastofnana. Hún situr í fagráði meistaranáms í stjórnun heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst.