18. febrúar 2008
Heimsókn þingflokks Frjálslynda flokksins
Þingflokkur Frjálslynda flokksins heimsótti Háskólann á Bifröst í dag með Guðjón Arnar Kristjánsson formann flokksins, og Kristin H. Gunnarsson, formann þingflokksins, í broddi fylkingar. Gestirnir skoðuðu skólahúsnæðið og umhverfið í fylgd rektors og fengu upplýsingar um skólann og sögu hans. Skólinn bauð þeim jafnframt til hádegisverðar á Kaffi Bifröst. Gestirnir spurðu um margt varðandi skólann og ræddu við nemendur og starfsmenn og voru hinir ánægðustu í lok heimsóknar.