26. febrúar 2008
Styrkveitingar til verkefnisins Jafnréttiskennitalan
 |
| Elín Blöndal, dósent, er forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar vinnuréttar og jafnréttismála |
Viðskiptaráðuneytið veitti nýlega sérstakan styrk til verkefnisins um Jafnréttiskennitöluna. Verkefnið er unnið á vettvangi Rannsóknaseturs vinnuréttar- og jafnréttismála og miðar að árlegri birtingu upplýsinga, einkum um hlutfall kvenna í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda í fyrirtækjum hér á landi. Jafnframt hefur Baugur veitt styrk til verkefnisins.
Með þessu styrkja þessir aðilar mikilvægar rannsóknir á nýtingu mannauðs innan fyrirtækja hér á landi. Styrkirnir fela jafnframt í sér hvatningu til aukins kynjajafnréttis í stjórnun fyrirtækja á Íslandi. Styrkveiting viðskiptaráðuneytisins nemur einni milljón króna og styrkur Baugs er 500 þúsund.
Nánari upplýsingar um Jafnréttiskennitöluna má finna á vef Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála.